top of page

BMW swap-kit í Patrol

Við hjá IceAk ehf. bjóðum upp á að flytja inn komplett BMW vélakit sem passar beint í Patrolinn þinn

Ertu orðinn þreyttur á kraftleysinu í Patrolnum þínu og að allir fari fram úr þér öllum í brekkum?
Viltu vera laus við endalausar áhyggjur af hitavandamálum og heddum?

Þá erum við með lausnina fyrir þig. Við bjóðum BMW M57N 306 d2/d3 véla kit sem er búið að sníða til þannig að það passar beint í Patrola, er semsagt nánast "plug & play".

Þetta eru áreiðanlegar og öflugar vélar með mikið tog sem gera bílinn verulega skemmtilegann og minnka eyðslu töluvert, sérstaklega í mikið breyttum bílum. Gera má ráð fyrir 20-30% minni eyðslu.

BMW 306d2 kit klárt til ísetningar

BMW 306d2 í Y61 Patrol

BMW 306d2 í Y60 Patrol

306d2/306d3 swap kit (hvor vélin það yrði fer eftir framboði úti)

  • 306d2 (orginal 218HP) - eftir tjúningu 260-280HP/680Nm

  • 306d3 (orginal 235HP) - eftir tjúningu 280-300HP/700Nm


Allar vélarnar eru teknar úr ökufærum bílum sem eru max eknir 150.000Km

Eftirfarandi atriði eru yfirfarin í hverri vél af söluaðila úti áður en þær eru afhentar:

  • Nýr tímagír (keðjur, sleðar ofl.)

  • Ný Sveifaráspakkdós, ventlaloks og pönnu pakkning

  • Allir spíssar prófaðir

  • Allir óþarfa skynnjarar fjarlægðir svo sem EGR og flowmeter.

  • Olíupanna tekin af og þvegin.

  • Stangar og sveifaráslegur athugaðar.

  • Vélin er álagsprófuð í bekk í 3 tíma þar sem hún er prófuð á öllum snúningssviðinu.
    td. er virkni spíssa, ECU vélartölvu og kælikerfis athugað.

 

Innifalið í kitinu er:

  1. Komplett 306d2/306d3vél tilbúin til ísetningar

  2. Milliplata fyrir 3.0L Patrol gírkassa ásamt snúningshraða skynnjara og boltum.

  3. Komplett kúplingssett, 300mm (þolir 750Nm átak)

  4. 2x mótorfestingar á grind, spacerar fyrir snekkju og bracket fyrir turbocharger controller.

  5. Modified plug & play rafkerfi sem virkar td. með orginal mælaborðinu í bílnum.

  6. Endurforrituð og "möppuð" orginal vélartölva, þjófavörn (immobiliser) og aðrir óþarfa fídusar gerðir óvirkir, svo sem: EGR, DPF, flowmeter ofl.

  7. Nýr 90mm þykkur ál vatnskassi, sambærilegur og BMW kassarnir, ásamt öllum tengingum.

  8. Notaður BMW A/C og stýris kælar

  9. Notaður BMW intercooler

  10. Notuð BMW kælivifta

  11. Nýtt 70mm rústfrítt púst með einum kút

  12. Nýtt loftinntak

  13. Nýtt eldsneytiskerfi; lagnir, dæla, þrýstistillir,og sía
     

Bjóðum 3 mismunandi kit sem innihalda allt sem þarf fyrir bílinn þinn.

  • Komplett kit fyrir 3.0 bsk = 1.699.000kr* (Vél með öllu ofangreindu)

  • Komplett kit fyrir 2.8 bsk = 1.949.000kr* (Vél með öllu ofangreindu og gírkassi)

  • Komplett kit fyrir 3.0 ssk = 1.975.000kr* (Vél með öllu ofangreindu, gírkassi og tilheyrandi)


Bjóðum einnig upp á ísetningu ef óskað er.

Öll verð eru með 24%VSK

ATH! Gera má ráð fyrir ca 6-8 vikna afhendingartíma.

Fyrir frekari upplýsingar, pantanir, greiðslufyrirkomulag eða annað hafið þá samband við okkur beint.

iceak.iceland@gmail.com eða í síma 779-7809

* Verð miðast við gengi 1/10 2017 (EUR:ISK 1:125kr)

BMW 306d3 í Y61 Patrol

bottom of page